15.04.2012 19:58

Reiðhallarmótum lokið þetta árið

Þá er Húnvetnsku liðakeppninni lokið árið 2012. Lið 3 vann keppnina með miklum yfirburðum og fékk 257 stig. Í öðru sæti varð lið 2 með 184,5 stig í þriðja sæti varð lið 1 með 140,5 stig og í fjórða sæti lið 4 með 122 stig. Koma vonandi myndir frá deginum inn á síðuna í kvöld.
Við Logi kepptum bæði, ég keppti á Gretti og Logi keppti á 6 vetra Sædynsdóttur sem heitir Líf frá Sauðá. Það gekk vel, ég fór heim með bikarinn og Logi var í b-úrslitum.




Sigurhringurinn tekinn með stæl ;)

Úrslit dagsins urðu eftirfarandi:

1. flokkur
A-úrslit
1    Fanney Dögg Indriðadóttir / Grettir frá Grafarkoti 7,39

2    Ísólfur Líndal Þórisson / Freyðir frá Leysingjastöðum II 7,28

3    Elvar Einarsson / Lárus frá Syðra-Skörðugili 6,89

4    James Bóas Faulkner / Vígtýr frá Lækjamóti 6,39

5    Pálmi Geir Ríkharðsson / Heimir frá Sigmundarstöðum 5,89 

B-úrslit

5    Pálmi Geir Ríkharðsson / Heimir frá Sigmundarstöðum 6,00

6-7    Herdís Einarsdóttir / Brúney frá Grafarkoti 5,83

6-7    Hlynur Þór Hjaltason / Ræll frá Hamraendum 5,83

8    Guðmundur Þór Elíasson / Fáni frá Lækjardal 5,72

9    Elvar Logi Friðriksson / Líf frá Sauðá 5,50 

Hér eru niðurstöður einstaklingskeppninnar, við Logi urðum í öðru og þriðja sæti.

Einstaklingskeppnin:

1. flokkur
1. Ísólfur L Þórisson 40 stig
2. Fanney Dögg Indriðadóttir 36 stig
3. Elvar Logi Friðriksson 29 stig

2. flokkur
1. Vigdís Gunnarsdóttir 25 stig
2. Kolbrún Stella Indriðadóttir 21 stig
3. Gréta B Karlsdóttir 19 stig

3. flokkur
1. Rúnar Örn Guðmundsson 17 stig
2. Höskuldur Erlingsson 8,5 stig
3.Jóhannes Geir Gunnarsson 8 stig

Unglingaflokkur
1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir 16 stig
2. Birna Olivia Ödqvist 11 stig
3. Helga Rún Jóhannsdóttir 9 stig

Mótið var mjög skemmtilegt, við vorum með tvær spurningakeppnir sem liðin tóku öll þátt í og þar bar sigur úr býtum 2 good - sem er lið 2 :) 


Annan í páskum var haldið töltmót í Þytsheimum, Logi keppti líka þar á Líf frá Sauðá sem er efnileg tölthryssa og uppskar heldur hærri einkunn þar.

 

1.flokkur eink fork/úrslit:
1. sæti Ísólfur Líndal Þórisson og Framtíð frá Leysingjastöðum II: 6,50/7,17
2. sæti Herdís Einarsdóttir og Brúney frá Grafarkoti: 6,50/7,00
3. sæti Pálmi Geir Ríkharðsson og Greipur frá Syðri-Völlum 6,30/6,83
4. sæti Elvar Logi Friðriksson og Líf frá Sauðá 6,20/6,50
5. sæti Þóranna Másdóttir og Carmen frá Hrísum 5,70/6,33
6. sæti James Bóas Faulkner og Tígur frá Hólum 5,70/6,17

Skemmtilegt mót sem er jafnvel komið til að vera á þessum tíma!

Lokamót ks-deildarinnar var haldið 4. apríl sl. Þar var keppt í slaktaumatölti og skeiði. Ég endaði í 8.sæti á Gretti í slaktaumatölti, ágætis frumraun. Honum þótti mjög gaman að bruna um á tölti með slakann tauminn! Logi keppti á Brúney frá Grafarkoti, það er mjög efnileg 6 vetra hryssa. Hún var góð en það dugði ekki í úrslit að þessu sinni. Síðan kepptum við í skeiði Logi varð í 13.sæti á Hvirfli frá Bessastöðum með fínan tíma en ég vermdi botninn í þeirri grein að þessu sinni.

A-úrslit

1 Tryggvi Björnsson 7,58

2 Mette Mannseth 7,38

3 Þórarinn Eymundsson 7,38

4 Sölvi Sigurðarson 7,00

5 Bjarni Jónasson 6,83

B-úrslit

5 Sölvi Sigurðarson 7,00

6 Ísólfur L Þórisson 6,96

7 Elvar Einarsson6,92

8 Fanney Dögg Indriðad 6,54

9 Sveinn B Friðriksson 6,46

Í skeiðinu náði Metta Mannseth hraðasta tímanum á Þúsöld frá Hólum. Hér fyrir neðan má sjá úrslit í skeiðinu:

1. Mette Mannseth Þúsöld frá Hólum 4,96

2. Þórarinn Eymundsson Bragur frá Bjarnastöðum 4,98

3. Bjarni Jónasson Hrappur frá Sauðárkróki 5,04

4. Þorbjörn H Matthíasson Mötull frá Torfunesi 5,08

5. Sölvi SigurðarsonSteinn frá Bakkakoti 5,09

6. Ísólfur L Þórisson Flugar frá Barkarstöðum 5,12

7. Erlingur Ingvarsson Stígur frá Efri Þverá 5,22

8. Baldvin Ari Guðlaugsson Jökull frá Efri Rauðalæk 5,24

9. Magnús B Magnússon Fjölnir frá Sjávarborg5,27

10. Tryggvi Björnsson Blær frá Miðsitju 5,31

11. Þorsteinn Björnsson Melkorka frá Lækjamóti 5,31

12. Elvar Einarsson Segull frá Halldórsstöðum 5,4

13. Elvar Logi Friðriksson Hvirfill frá Bessastöðum 5,42

14. Sveinn B Friðriksson Glaumur frá Varmalæk 5,45

15. Ólafur Magnússon Steina frá Nykhóli 5,71

16. Viðar Bragason Sísí frá Björgum 5,79

17. Fanney Dögg Indriðad Sváfnir frá Söguey 6

18. Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu 0,00

Þá er ks deildinni lokið þetta árið, ég vann mér rétt til þess að keppa aftur á næsta ári, ásamt 11 öðrum, en 6 duttu út og Logi var á meðal þeirra að þessu sinni.


22.03.2012 08:38

ks-deild

Töltið í ks-deildinni var í gærkvöldi í Svaðastaðahöllinni. Keppnin var afar jöfn og spennandi. Ég og Grettir unnum okkur sæti í b-úrslitnum og enduðum í 6.-7. sæti rétt misstum af farseðli í a-úrslit. Við erum búin að fá yfir 7 í einkunn í bæði tölti og  fjórgangi í deildinni og erum ánægð með það.
Sigurvegari kvöldsins var Óli Magg á Gáska sínum og upp úr b-úrslitum kom Baldvin Ari á Senjor frá Syðri Ey.
Úrslit urður eftirfarandi:

 A-úrslit

Sæti     Knapi  Eink

1          Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum  7,89

2          Bjarni Jónasson Roði frá Garði          7,67

3          Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund  7,61

4          Baldvin Ari Guðlaugsson Senjor frá Syðri Ey          7,33

5          Tryggvi Björnsson Stórval frá Lundi           7,00

B-úrslit                      

Sæti     Knapi  Eink

5          Baldvin Ari Guðlaugsson Senjor frá Syðri Ey         7,22

6          Elvar Einarsson Lárus frá Syðra Skörðugili7,17

7          Fanney Dögg Indriðad Grettir frá Grafarkoti           7,17

8          Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk7,11

9          Ísólfur L Þórisson Freyðir frá Leysingjastöðum 7,06

10        Erlingur Ingvarsson Skrugga frá Kýrholti     6,78



Við Grettir í hraðabreytingum

18.03.2012 10:40

Flottur foli á fjórða

Byr frá Grafarkoti undan Hóf frá Varmalæk og Urt frá Grafarkoti. Mjög flottur og efnilegur foli sem Logi er að þjálfa í Grafarkoti. Smelltum nokkrum myndum af honum.

 

Fimmgangurinn í Húnvetnsku liðakeppninni var sl. föstudag. Loga gekk vel, fékk hryssuna Alúð frá Lækjamóti lánaða og komst í b-úrslit, vann þau og endaði í 4.sæti. Flottur árangur það!

A-úrslit 5-gangur
1. Ísólfur Líndal Þórisson / Kvaran frá Lækjamóti eink. 7,19 
2. Mette Mannseth / Háttur frá Þúfum eink. 7,12
3. Sölvi Sigurðarson / Dóri frá Melstað eink. 6,98
4. Elvar Logi Friðriksson / Alúð frá Lækjamóti eink. 6,48 (vann b-úrslit)
5. Sæmundur Sæmundsson / Mirra frá Vindheimum 6,12

Nú er aðeins eitt mót eftir og það er töltið sem verður laugardaginn 14.apríl. Staðan í einstaklingskeppninni er  eftirfarandi:


1. flokkur


1. sæti Ísólfur Líndal Þórisson 28 stig
2. sæti Elvar Logi Friðriksson 24 stig
3 -4. sæti Fanney Dögg Indriðadóttir 22 stig

3-4. sæti Líney María Hjálmarsdóttir 22 stig

2. flokkur

1.sæti Kolbrún Stella Indriðadóttir 21 stig
2.sæti Vigdís Gunnarsdóttir 15 stig
3.sæti Gréta B Karlsdóttir 13 stig

4.sæti Halldór Pálsson 12 stig

5.sæti Jónína Lilja Pálmadóttir 11 stig


3.flokkur 


1.sæti Rúnar Guðmundsson 12stig
2.sæti Höskuldur Birkir Erlingsson 6 stig
3. sæti Irina Kamp 5 stig

Unglingar
1. sæti Ásdís Ósk Elvarsdóttir 12 stig
2. sæti Birna Olivia Agnarsdóttir 8 stig
3. sæti Hákon Ari 6 stig

27.02.2012 20:14

Mótin byrjuð

Það er nóg að gera í keppnisgleðinni um þessar mundir.
Ks-deildin var á miðvikudaginn, þar var keppt í fjórgangi. Mér gekk vel með Gretti fórum beint í a-úrslit með 6,80 í einkunn. Stuðull var ekki að gera sig í þetta skiptið hjá Loga.
Í úrslitum gekk svo ágætlega, við enduðum í sjötta sæti með 7,00 í einkunn - prýðis árangur það! Grettir er skemmtilegur orkubolti


Á laugardaginn var síðan annað mót Húnvetnsku liðakeppninnar, þar var keppt í smala og skeiði. Ég keppti á Sjón frá Grafarkoti og Logi keppti á Hörpu frá Margrétarhofi í smalanum. Ég varð í 3.sæti og Logi í 4.sæti. Það er mjög gaman að keppa á liprum hrossum í smala sem hafa gaman af þessu :)


Við kepptum líka í skeiði. Ég keppti á Kapli frá Grafarkoti, 18 vetra höfðingi sem er nýlega kominn inn, alltaf skemmtilegur. Logi fékk vekringinn Hrapp frá Sauðárkróki lánaðann hjá Elvari á Skörðugili. Honum gekk mjög vel og þeir urðu í 2.sæti og skeiðuðu í gengum Blönduóshöllina á 3,81 sek.


Fullt af skemmtilegum myndum á Þytssíðunni

11.02.2012 23:39

Haldið ykkur fast...

Húnvetnska liðakeppnin er að byrja ;)

28.01.2012 22:47

Janúar banúar

Það er ekki hægt að segja annað en tryppin venjist ýmislegu í tamningunni þennan veturinn. Þau þurfa að vaða snjóskafla hingað og þangað, fara framhjá moksturtækjum, mæta hundum uppá sköflum, lenda í snjókomu og hálfgerði hríð o.s.frv.


Fold Hvessisdóttir að fara í reiðtúr  -    Eru komin hálfgerð göng frá hesthúsinu
 
Fórum í rekstur í dag í Grafarkoti, pabbi mokaði reiðveginn þannig að það var LOKSINS hægt að komast fyrir öllum þessum snjó sem hefur boðið sig velkominn hingað. Hrossunum fannst ekkert leiðinlegt að hlaupa frjáls úti og pabbi mátti hafa sig allan við að keyra á undan þeim á dráttavélinni.


 
Hrossin að koma heim í dag, Særún og Fold frá Sauðárkróki

Það er auðveldara að fara í rekstur á Hvammstanga, en hrossin geta reyndar ekki hlaupið allan tímann á reiðveginum, við erum búin að fara nokkrum sinnum í rekstur með þau. Það er hellings þolþjálfun að vaða snjóinn og þau eru MJÖG slök eftir reksturinn. Okkur finnst gaman að vera á Tanganum líka, fínt að hafa meiri félagsskap eins og er seinnipartinn uppí hesthúsahverfi og auðvelt að redda mannskap til að reka!! :)

 
Verið að leggja af stað                - Komin á fleygiferð!!!!

Sýn 
Sýn frá Grafarkoti               -         Stuðull, Sjón, Sýn og fleiri inní gerði.

Þó að stóðhestarnir fái ekki að fara með í rekstur, þá finnst þeim ekki leiðinlegt að komast út í gerði sérstaklega í svona miklum snjó. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af stuðboltunum. 

 
Samverji frá Grafarkoti          -             Vörður frá Sauðá

 
Hljómur frá Sauðárkróki     -     Byr frá Grafarkoti

 
Feðgarnir Vörður og Grettir    -      Ungir stóðhestar að kljást

03.01.2012 23:16

Reiðnámskeið

Fyrirhugað er að halda reiðnámskeið fyrir hinn almenna reiðmann dagana 14. og 15. janúar 2012 í Þytsheimum. Farið verður yfir grunnatriði í sambandi við þjálfun reiðhestsins, ábendingar og ásetu knapa.  Innifalið er 1 bóklegur tími og 2 verklegir hóptímar (ekki fleiri en 4 í hóp)

Mæta skal með taminn hest. Námskeiðið hefst kl. 10 laugardaginn 14. janúar á bóklegum tíma í félagshúsi Þyts. Nánari tímasetningar ráðast af skráningu.

Hugsunin er að hafa regluleg námskeið í vetur þar sem nemendur fá góðar þjálfunarhugmyndir og geta bætt færni sína sem knapar.

Kennari er Fanney Dögg Indriðadóttir. Verð: 10.000 kr.

Skráning á thytur@hotmail.com í síðasta lagi miðvikudaginn 11.janúar.



23.12.2011 21:00

Jólin 2011


Okkar bestu óskir um gleðileg jól gott og farsælt komandi ár

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða, hittumst hress á því nýja.

 


Jólakveðja Fanney og Logi.



09.12.2011 19:58

Alvöru vetur!

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að vetur konungur er mættur og hann er ekki feiminn. Við fórum ásamt Gunnari og Grétu til London í síðustu viku. Það var mjög skemmtileg ferð. Við vorum ofsalega menningarleg fórum á tvö söfn, kíktum í London eye og skoðuðum Tower bridge. Við skemmtum okkur konunglega og ég væri alveg til í að fara einhverntíman aftur til London. Það voru viðbrigði að koma heim í kuldann.



Við erum búin að flytja starfsemina okkar frá Hrísum í bili, of mikill kuldi! Erum núna komin með hross á Hvammstanga, Grafarkot og tímabundið á Gauksmýri. Verið er að innrétta stíur í Grafarkoti, þannig að um leið og það er tilbúið verðum við með hrossin okkar þar og á Hvammstanga. Okkur hlakkar til að prófa að vera á Hvammstanga í vetur, hugsanlega meira líf og fjör.

Við erum búin að taka inn tvær hryssur á sjötta vetur sem áttu sitthvort folaldið í sumar.
Það eru þær Líf frá Sauðá og Sýn frá Grafarkoti. Verður gaman að þjálfa þær í vetur. Annars erum við með skemmtilegan hóp inni í vetur. Bæði frá okkur og öðrum.
 
Sýn 4 vetra.  Sjón

06.11.2011 15:01

Efnilegir ungfolar

Nú eru tamningar í fullum gangi á Hrísum, búið að fylla hesthúsið af tamningatryppum frá öðrum og hrossum sem við eigum sjálf. Tryppin eru m.a. undan Roða frá Múla, Akk frá Brautarholti, Fróða frá Staðartungu, Gandálfi frá Selfossi, Huginn frá Haga, Nema frá Grafarkoti og Aðli frá Nýjabæ svo eitthvað sé nefnt. Það eru spennandi verkefni framundan.

Við vorum að gefa ungfolunum ormalyf í dag, tókum myndband af tveim þeirra sem sjá má hér á myndbandasíðunni


Ári frá Grafarkoti brúnskjóttur, faðir Álfur frá Selfossi og móðir Sál frá Grafarkoti. Ári er geðgóður foli með mjúkar og flottar hreyfingar. Myndband af honum hér
Sál hefur gefið góð afkvæmi, m.a. Gammssoninn Stuðul frá Grafarkoti og Klettssoninn Erfingja frá Grafarkoti. Myndir af þeim hér fyrir neðan.



Hinn folinn sem við tókum myndband af er Kaldi frá Sauðá brúnn, undan Roða frá Múla og Golu frá Sauðá. Hann er því albróðir Orku frá Sauðá (7,94) sem er ein af þremur hrossum sem hlaut 9,5 fyrir stökk árið 2011, 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og geð og fegurð í reið. Kaldi er með rosalega flottar hreyfingar, flugnæmur og töff foli. Myndband af honum hér

mynd af Orku systir hans í kynbótasýningu hér fyrir neðan.

  

Við erum svo með hnakk til sölu Ástund Royal plús
5 ára, vel með farinn. Gæti þurft að bæta eitthvað í púðana á honum. Annars alveg í toppstandi.
Áhugasamir hafið samband



 

11.10.2011 19:14

Tamningamyndir


Kvörn undan Geisla frá Sælukoti og Gráskeggur undan Hóf frá Varmalæk.

Tamningar ganga vel, tryppin eru þæg og fín, eru öll að verða reiðfær. Líst ljómandi vel á þau! Gaman hvað þau eru forvitin og næm.


Tryppin að læra að borða með beisli, getur verið vandasamt - Hedvig og Æringi frá Grafarkoti, Gaumssonur.

 
Vörður frá Sauðá undan Gretti frá Grafarkoti og Orku frá Sauðá - Mídas að kyssa vin sinn Púmba!

05.10.2011 19:36

Tamningar hafnar

Ég er byrjuð að temja 4ja vetra tryppin okkar, það eru þrjú undan Hóf frá Varmalæk, einn hestur undan Gretti frá Grafarkoti og ein hryssa undan Geisla frá Sælukoti. Gengur mjög vel með þau, ofsalega þæg og fín. Er líka að þjálfa nokkur fleiri hross. Hedvig er að frumtemja þrjá fola frá Grafarkoti og tvö tryppi frá Gröf. Þannig að við erum saman í Grafarkoti þessa dagana.
Alltaf gaman að frumtemja á haustin, og ofsalega notalegt að vera inni í reiðhöll - tala nú ekki um þegar veðrið er svona asskoti glatað eins og það hefur annars verið frábært í haust!


Kvörn undan Alin frá Grafarkoti og Geisla frá Sælukoti og Vörður undan Okru frá Sauðá og Gretti frá Grafarkoti. (Myndband af mömmu hans Varðar)


Stóðréttirnar í Víðidal voru sl. helgi - mikið fjör að vanda, veðrið ekki alveg uppá sitt besta en það er samt ALLTAF gaman :-))


Tók þessa fallegu mynd af hestunum sem voru að bíða við Valdarásrétt!


Var að uppfæra folaldasíðuna okkar

24.08.2011 19:57

Frumtamningar




Tökum að okkur tryppi í frumtamningu í haust
á Hrísum II

Erum byrjuð að taka við pöntunum í símum 848-3257 Logi og 865-8174 Fanney.
e-mail: fanney_d@hotmail.com

- Magnafsláttur -

22.08.2011 09:02

Opna íþróttamót Þyts

Íþróttamót Þyts var mjög skemmtilegt. Ég keppti á Köru frá Grafarkoti og Ímynd frá Gröf, þær komust báðar í úrslit. Kara í a-úrslit og Ímynd í b-úrslit. Þannig að ég valdi að ríða úrslitin á Köru, en þetta var hennar fyrsta og eina keppni því hún er fylfull við Spuna frá Vesturkoti. Kara er 6 vetra undan Klassík frá Grafarkoti og Gammi frá Steinnesi. Hún stóð sig mjög vel, endaði í 5.sæti með einkunnina 6,21. Logi keppti á Stuðli frá Grafarkoti í tölti og fjórgangi. Komst í a-úrslit í tölti og endaði í 5.sæti með einkunni 6,61. Síðan kepptum við í stökk- og brokkkappreiðum á Veru og Indíána. Logi og Indíáni voru í 2.sæti í stökkinu bara sekúndubrotum frá sigri. Bara gaman að keppa í svona stökkkappreiðum.
Síðan keppti Logi á Kaleik frá Grafarkoti í gæðingaskeiði og varð í 5.sæti með einkunnina 6,29.
Umferð 1 2,00 7,00 6,50 8,80 3,50 5,83
Umferð 2 3,50 7,50 7,00 8,70 6,00 6,75




 úrslit dagsins.

Fimmgangur b-úrslit - 1. flokkur



6. Ísólfur Líndal Þórisson / Ræll frá Gauksmýri 6,55
7. James Bóas Faulkner / Flugar frá Barkarstöðum 6,19
8. Sverrir Sigurðsson / Rammur frá Höfðabakka 5,88
9. Greta Brimrún Karlsdóttir / Hula frá Efri-Fitjum 5,76

Fimmgangur a-úrslit - 1. flokkur



1 Mette Mannseth / Hnokki frá Þúfum 7,26
2 Bjarni Jónasson / Djásn frá Hnjúki 7,21
3 Þórarinn Eymundsson / Seyðir frá Hafsteinsstöðum 7,14
4 Jóhann Magnússon / Hugsýn frá Þóreyjarnúpi 6,60
5 Fanney Dögg Indriðadóttir / Kara frá Grafarkoti 6,21

Fjórgangur - 1. flokkur




1 Mette Mannseth / Segull frá Flugumýri II 7,53
2 Ísólfur Líndal Þórisson / Kristófer frá Hjaltastaðahvammi 6,93
3 Tryggvi Björnsson / Stimpill frá Vatni 6,83
4 Riikka Anniina / Gnótt frá Grund II 6,40
5 Sonja Líndal Þórisdóttir / Kvaran frá Lækjamóti 6,13

Fjórgangur - 2. flokkur



1 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir / Ræll frá Varmalæk 6,77
2 Vigdís Gunnarsdóttir / Sögn frá Lækjamóti 6,50
3 Kolbrún Stella Indriðadóttir / Vottur frá Grafarkoti 6,27
4 Sandra Marin / Glymur frá Akureyri 6,23
5 Íris Sveinbjörnsdóttir / Bráinn frá Akureyri 5,57

Fjórgangur - unglingaflokkur



1 Elín Magnea Björnsdóttir / Stefnir frá Hofsstaðaseli 6,67
2 Brynja Kristinsdóttir / Tryggvi Geir frá Steinnesi 6,57
3 Finnbogi Bjarnason / Svala frá Garði 6,17
4 Bryndís Rún Baldursdóttir / Birna frá Vatnsleysu 6,03
5 Birna Olivia Ödqvist / Björk frá Lækjamóti 5,33

Fjórgangur - barnaflokkur




1 Viktor Jóhannes Kristófersson / Flosi frá Litlu-Brekku 6,30
2 Jónína Ósk Sigsteinsdóttir / Vár frá Lækjamóti 5,27
3 Eva Dögg Pálsdóttir / Katla frá Fremri-Fitjum 5,20
4 Nína Guðbjörg Gunnarsdóttir / Mímir frá Syðra-Kolugili 3,90
5 Karítas Aradóttir / Gyðja frá Miklagarði 3,70

Tölt T2




1 Mette Mannseth / Háttur frá Þúfum 6,50
2 Kolbrún Stella Indriðadóttir / Kátur frá Grafarkoti 6,42
3 Ragnar Stefánsson / Saxi frá Sauðanesi 6,04
4 Sverrir Sigurðsson / Arfur frá Höfðabakka 5,00
5 Þóranna Másdóttir / Hvítserkur frá Gauksmýri 4,17

Tölt - 1. flokkur




1 Þórarinn Eymundsson / Taktur frá Varmalæk 8,11
2 Mette Mannseth / Segull frá Flugumýri II 7,67
3 Tryggvi Björnsson / Sif frá Söguey 7,33
4 Riikka Anniina / Gnótt frá Grund II 6,72
5 Elvar Logi Friðriksson / Stuðull frá Grafarkoti 6,61

Tölt - 2. flokkur



1 Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir / Kolgerður frá Vestri-Leirárgörðum 6,94
2 Ragnar Smári Helgason / Kóði frá Grafarkoti 6,33
3 Vigdís Gunnarsdóttir / Ræll frá Gauksmýri 5,94
4 Halldór Sigfússon / Seiður frá Breið 5,78
5 Anna Lena Aldenhoff / Dorit frá frá Gauksmýri 5,67


Tölt - unglingaflokkur




1 Valdimar Sigurðsson / Fönix frá Hlíðartúni 6,62
2 Finnbogi Bjarnason / Svala frá Garði 6,56
3 Aron Orri Tryggvason / Sóldögg frá Efri-Fitjum 6,50
4 Atli Steinar Ingason / Diðrik frá Grenstanga 6,22
5 Elín Magnea Björnsdóttir / Stefnir frá Hofsstaðaseli 6,11


Tölt - barnaflokkur




1 Anna Herdís Sigurbjartsdóttir / Funi frá Fremri-Fitjum 5,50
2 Viktor Jóhannes Kristófersson / Flosi frá Litlu-Brekku 5,39
3 Jónína Ósk Sigsteinsdóttir / Vár frá Lækjamóti 5,11
4 Eva Dögg Pálsdóttir / Katla frá Fremri-Fitjum 5,00
5 Telma Rún Magnúsdóttir / Efling frá Hvoli 4,61

Gæðingaskeið



1. sæti - Tryggvi Björnsson, Dynfari frá Steinnesi - 8,00
Umferð 1 6,00 8,00 8,00 8,40 6,50 7,75
Umferð 2 7,00 8,00 8,00 8,20 7,50 8,25

2. sæti - Mette Mannseth, Háttur frá Þúfum - 7,13
Umferð 1 7,00 7,50 7,00 8,80 7,00 7,42
Umferð 2 6,50 7,00 7,00 9,20 6,50 6,83

3. sæti - Sverrir Sigurðsson, Rammur frá Höfðabakka - 6,67
Umferð 1 5,00 7,00 7,50 9,50 6,00 6,33
Umferð 2 4,00 8,00 8,00 9,10 7,50 7,00

4. sæti -  Mette Mannseth, Hnokki frá Þúfum - 6,38
Umferð 1 6,50 6,50 6,50 9,22 5,00 6,42
Umferð 2 6,00 6,00 6,50 9,50 7,00 6,33

5. sæti -  Elvar Logi Friðriksson, Kaleikur frá Grafarkoti - 6,29
Umferð 1 2,00 7,00 6,50 8,80 3,50 5,83
Umferð 2 3,50 7,50 7,00 8,70 6,00 6,75

05.08.2011 21:58

Hross til sölu

Hestar til sölu / horses for sale

 Kaleikur frá Grafarkoti - 1. prised stallion. His father is Dynur frá Hvammi and the mother is Klassík frá Grafarkoti.
8,10 riding abilites, 8,09 conformation and 8,10 total. 8,5 for tölt and walk. Kaleikur is a very nice five gated stallion. Contact Herdís gsm:848-8320 or Indriði gsm: 860-2056. Góður 1 verðlauna, fimmgangshestur.

Ímynd frá Gröf 7 vetra - Fimmgangshryssa með góðar gangtegundir, mikið tamin. Five gaited, good gates!
Faðir: Rauðskinni frá Grafarkoti 1.v. stóðhestur
Móðir: Fluga frá Gröf
Mjög skemmtileg hryssa, flugrúm viljug en þæg. Easy to handle, willing nice movements.
SELD

Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 120
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 157026
Samtals gestir: 47741
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:39:00